Já nú eru ekki nema 5 dagar í að við leggjum í hann til Tenerife,, get eiginlega ekki neitað því að eftir allt sem að hefur verið í gangi síðust daga þá hlakka ég til í að komast í sólina og slappa aðeins af,,, ég er eiginlega búin að komast að því að ég þoli ekki mikið stress( veit ekki alveg hvað ég era ð gera í Reykjavíkinn ) en svona er það bara. Folk er mis sterkt hihih og já ég er aumingi. Allavega hvað það varðar. En þetta verður bara snilld dandalast bara þarna á kjólnum með mojito og hafa það nice… omg get ekki beðið. Sem er annað en ég sagði hér síðast,, en eins og er þá er ég ekkert að hugsa um allar mínar hefðir eða hvað sem að ég á að kalla þetta,, það koma bara önnur jól á eftir þessum.. en eitt er það sem að ég sakna alltaf,, það era ð heyra ekki mín uppáhaldsjólalög í útvarpinu,, heyri að vísu oft íslensku login en þau erlendu eru ekki mikið spiluð,, en eins og flestir vita sem að þekkja mig þá hef ég altaf haldið upp á ALL I WANT FOR CHRISTMAS IS MY TWO FRONT TEETH og hit lagið, ef að lag skyldi kalla er með þeim félögum CHEECh & CHONG eða hvernig sem að það er skrifað… en þar eru þessir hasshausar að tala um jólasveininn,, bara snilldin ein. En já mig vantar að heyra þessi lög. Á þau því miður ekki í tölvunni minni lengur.
En svo er bara allt að verða klárt, eða stefni allavega á að hætta að vinna á skikkanlegum tíma á morgun og klára allt,, jólakortin einnig.. en þið sem að fáið ekki kort frá mér í ár, bara svo að þið vitið það þá er það ekki vegan þess að þið eruð gleymd þvert á móti.. hef bara alls ekki haft nægan tíma, en mun gera mitt besta að senda öllum sem að ég er vön, .
En já Kláraði prófin 6.des og svo er það bara nýr skóli framundan á næstu önn. Verður bara gaman. Verður að vísu ekki mikill frítími en um að gera að reyna að drífa þetta af.. og já svo hefur verið svolítið mikið að gera í vinnunni, en er að vísu að róast núna, hef verið að vinna með svo skuggalega duglegu fólki
þurfti að vísu að vera þar bæði í gærr og í dag yfir nánast ekki neinu.. geggjað fjör það,, en svo hefur Addi verið mikið veikur og vona ég nú að það fari allt vel og þú náir að stíga upp úr þessu,, veit að þetta er ekki auðvelt fyrir þig Addi minn, en þú ert sterkur og ég veit að þú getur þetta,, En þar sem að hann hefur legið á Landspítalanum þá hef ég aðeins reynt að hjálpa til og verið með litlu guttanna þeirra(hans og Hjalteyjar) og var það alveg greynilegt að litli vargur ( Hrannar) var ekki hrifinn af frænku sinni til að byrja með, því að fyrsta kvöldið sem að kom að því að svæfa þá gaura þá snéri litli sér bara á hliðina og fór að sofa þegar ég ætlaði að tala við hann
greynilega ekki skemmtileg frænka hihihi en svo núna að þá er þetta allt annað.. og Jökull var bara hissa þegar ég kom síðast og ekki með náttfötin mín með mér hehehehe,,, en það er ágætt að hafa fengið smá tíma með þeim, þó að ég hefði viljað að það væri við betri aðstæður, en maður fær víst engu um það ráðið og það er bara að vona það besta
Til Báru
Já já hef alltaf verið að tuða yfir því að folk sé lélegt að kommenta og ég veit að e´g hef ekki verið dugleg að blogga,, en ég skal reyna að bæta mig, hef bara ekki haft tíma,, en já það þíðir ekkert að vera að kvarta í mömmu hvað ég er léleg að blogga,, svo bára mín hér eru smá skilaboð til þín.. Kommenta svo, fer’ bara inn á síðuna og klikkar á þar sem að stendur hvað margir hafa sagt sína skoðun og svo bara skýrir þetta sig sjálft,, gæti ekki verið einfaldara, þó að þú sért komin á þennann aldur elskan ættir að getað klórað þig fram úr þessu hihihihihihihihih..
En jæja ég er að hugsa um að hætta þessu blaðri og horfa á einn þátt af gossip girl fyrir svefninn..
En ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.. þakka árið sem er að líða…
Dídi kveður í bili